Foxtrot Uniform Charlie Kilo
02.04.2006 15:56:21 / agnez

......ný síða

NÝ síða:D..... www.blog.central.is/-drullukuntur-

vúúú....kíkja og kvitta;)

æji kúkur.... seinna bandstrikið virkar ekki þannig þið verðið bara að skrifa  urlið:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:26:05 / agnez

AHAHA...

ég sit hérna heima uppí sófa (í tölvunni obviously)... og er að hlusta á pottþétt 10 ára... (margar minningar í sumum lögum á honum nebblega) ;)... en allavega... diskurinn var bara að ganga af því ég var svo sokkin í tölvuna að ég var bara sona að "hálf" hlusta á þetta... þangað til alltíeinu rankaði ég við mér og ég stóð mig að því að vera að syngja með Macarena HAHAHA... "I'm not trying to seduce you" AHAHA... snilld.... en allavega.... ohh hlakka svo til á föstudaginn... úrslitakvöldið í Músíktilraunum:haha:.... jamm... hmm helgin mín var ekkert spes... bara sona... eða jújú hún var reyndar bara fín sko... eeeen ég nenni ekki að segja frá henni... haha.. æji ég blogga seinna... mér fannst þetta Macarena shit bara svo ógeðslega fyndið:haha:

bojboj


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 11:04:23 / agnez

JESSSSS

:haha::haha:.....halló.... ég ætlaði bara að blogga smá um fimmtudagskvöldið:haha:.. semsagt... jamm.... byrjaði svona...

Kristín kom að ná í mig hingað og við fórum svo að ná í vinkonur hennar og svona og fórum svo og keyptum miðana á músíktilraunir:haha:.... svo fengum við okkur að borða og rúntuðum eitthvað því að við nenntum svo innilega ekki að horfa á allar hljómsveitirnar... en svo þegar þrjár voru búnar ákváðum við að koma okkur í Loftkastalann. Ég og Kristín vorum alltaf að verða meira og meira stressaðar og sérstaklega ég því að ég hafði aldrei séð þá spila áður!! en svo loksins kom að þeim og ég var sko bara dáleidd....;)... þetta var GEÐVEIKT hjá þeim....!!!:haha:....  svo komu úrslitin og það eru sko 2 hljómsveitir sem komast áfram, ein sem áhorfendur velja (auðvitað bara vinir manns) og ein sem dómarar velja... og dómararnir völdu Modern Day Majesty!! og við klikkuðumst sko þegar hann sagði nafnið á hljómsveitinni:haha:...... en allavega meira seinnna...... bleeesssss


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 13:10:51 / agnez

blogg loksins

jæja ætli það sé ekki best að blogga eitthvað.... hmmm... hvað er ég búin að vera að gera...jæja... byrjum bara á 10. mars (afmælið mitt 16 ára!!)

vaknaði kl.6 og ég,Raggi og Steinar brunuðum úr bænum til dalvíkur... kom heim til mömmu og Raggi og Steinar fóru heim til Steinars. ég tók mig til og svona, fórum svo í kirkjuna í jarðarförina Tómasar. Raggi og Steinar komu svo.. þetta var rosalega falleg athöfn .....en erfið:cry:.. svo fórum við í erfidrykkjuna en fórum fljótlega úr henni... ég, Anna og Gunni fórum útí sveit og biðum eftir mömmu og Óskari því svo voru þau að fara aftur suður bara,....svo komu mamma og Óskar en ég nennti ekki að bíða eftir að Anna og Gunni færu (ég ætlaði að fá far til Dalvíkur) því að hún systir mín er mjög lengi að koma sér útúr húsi. Þannig að Simmi frændi skutlaði mér bara en Raggi, Steinar og Víðir komu á móti honum að ná í mig... svo fórum við til ak og eitthvað og síðan aftur til dalvíkur og svo fórum eg og Raggi bara útí sveit og við fórum svo suður aftur daginn eftir.

svo næstu daga man ég ekkert hvað ég var að gera.....pottþétt ekkert merkilegt eins og venjulega.  en  ég skal allavega segja frá helginni..

 á föstudagskvöldið vorum við nú bara að chilla og horfa á sjónvarpið heima hjá Ragga því hann var hvort sem er að fara að vinna daginn eftir... svo skutlaði hann mér heim á laugardagsmorgninum og ég fór bara í tölvuna og eitthvað...hringdi svo í guðrúnu og fræddi mig um það að hún og Stella ætluðu í kringluna og spurði hvort ég vildi ekki bara með..... jújú... ég skellti mér með... fórum...keyptum leðurjakka fyrir stellu og fengum okkur svo að borða og eitthvað... svo kom pabbi guðrúnar að sækja okkur og skutlaði mér og Stellu heim til mín og Guðrún fór með pabba sínum... svo vorum ég og stella bara eikkað að gera ekkert þangað til Kiddi kom og svo Guðrún stuttu seinna.... svo löbbuðum við í eikkerja búð...keyptum okkur eitthvað...eitthvað....

fórum svo heim aftur og vorum bara að hlusta á tónlist og spjalla saman og svoleiðis... fengum okkur aðeins í glas...bara að sötra... svo kom Eygló og þetta var bara mjög skemmtilegt kvöld... þótt að við höfum haldið að það yrði geðveikt leiðinlegt af því við höfðum ekkert að gera... en svo var ekki:haha:....!!... Þótt ég hafi reyndar orðið svo mömmusjúk að ég varð að hringja í hana:^)  á sunnudeginum tók svolítið til og svoleiðis og hitti svo Guðlaugu um kvöldið og eikkað...

jamm eg nenni ekki að gera meira....


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 14:21:53 / agnez

14.mars .......:O

Var að setja eitthvað nýtt í Flott......Ogeðslega fyndið drasl!!

blogga seinna þegar ég nenni að blogga eitthvað langt! en allir sem sendu mér sms eða hringdu eða eitthvað á afmælinu mínu sem ég gat ekki svarað TAKK;*;*..... allir sem gerðu það ekki.....fokkjú


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 12:12:54 / agnez

on the road again...

jæja....ég er að fara aftur norður í kvöld.... jarðaförin á morgun....... ég vona bara að hún verði ekki of þung..... en já ætlaði bara að segja það... þannig ég blogga ekki alveg strax aftur.... en já........

ég skrifa þa bara seinnna.... bæ...

ps ég var að klippa hárið mitt stutt......:p


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 13:58:15 / agnez

Tómas

tomas.jpg 

R.I.P.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 11:30:41 / agnez

....

http://www.roskilde-festival.dk/object.php?obj=2c0000c&code=45

fara inná þetta og velja June Variety!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 23:12:53 / agnez

halló..

jæja ég er ennþá bara í sveitinni... við anna og óskar fórum að ná í mömmu í dag inná ak... ég var alveg með gæsahúð og allt þegar við vorum að bíða eftir að hún kæmi útúr flugvélinni....:$.... það var gott að fá hana heim... eftir það fórum við og fengum okkur að borða....svo fórum við að kveðja Tómas.... Það var ekkert smá erfitt:cry:.... en svona eftir á var ég fegin að hafa gert það þar sem að ég kemst ekki í kistulagninguna... ég kem heim á laugardaginn....:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 20:27:49 / agnez

....

jæja... nú er ég er komin í Dæli til Óskars...

því eins og flestir vita lést Tómas Ýmir á laugardaginn síðasta í slysi... Þannig að við Anna Sigrún komum hérna norður til Óskars og gátum ekki hugsað okkur að gera það ekki.... Þetta er svo óraunverulegt og sorglegt að ég er bara ekki alveg búin að átta mig á þessu... en það er gott að vera komin hingað til Óskars.

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 13:29:33 / agnez

frí!!

jæja þá er loksins komið vetrarfrí....en jámm við stelpurnar ætlum að fara í pottinn í kvöld og sona....svo eru ég og guðrún að fara í brúnku á morgun......það verður nice..  allavega hef ég ekki mikið að segja.... jú vó... Birta var hérna.....en núna er hún farin....:cry:....mig langaði að hafa hana að eilífu.... hún er svooo sæt og góð... hún er sætUST......:cry:........ allavega blogga ábyggilega meira eftir helgina;)

Rúský


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 19:06:44 / agnez

;D

hallóóó....jæja... takk allir sem tóku þátt í prófinu...;).... ég er allavega bara ekkert að gera neitt sérstakt þessa dagana...bra skólinn og e-ð... en jámm.... segjum bara frá helginni... á föstudaginn var ég bra heima hjá ragga og kom svo heim og fór útí ísbúð til stellu sem var að vinna ... var þar í smástund og fékk mér blue lagoon...:D... svo seinna um kvöldið kom guðrún og við ákváðum að fara niðrí bæ á einhverja hiphop tónleika en þeir voru eillega búnir þegar við komum... þannið við röltum bara eikkað með kidda og ástþóri og eikkerjum... á devitos og svo beiluðu hinir á okkur og ég og guðrún tókum bara strætó heim og fórum þá í pulsupartý heim til halldóru og vorum ekkert að fíla okkur þar ...svo við ákváðum að rölta heim....sorglegt kvöld...

á laugardeginum fór ég í skírn og skírnarveislu til litla frænda hans Ragga... Ragnars Daníels...:D... það var bara fínt og ég fékk kökur:D... svo fórum við heim...og vorum bra eikkað að chilla og fórum svo uppí breiðholt og eikkað bara að chilla og svo bara heim til hans....eikkað....bra...að....chilla.... semsagt.... það eina sem ég gerði um helgina....... chilla...    en svo eru bara þriðjud. miðvikud og fimmtud eftir og þá er ég komin í vetrarfrí....vúhú...og jeij ég,stella, guðrún og eygló ætlum að fara í heitttttapott á fimmtudagskvöldið.....það verður niiiicccee....:D...... allavega ....þangað til næst...

Rúský.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 19:40:13 / agnez

ég er svo gömul....

jæja...maður er bara tognaður í bakinu:o... það er ömurlegt og ógeðslega vont og ég var að koma uppúr baði sem átti að laga þetta aðeins....en  það lagaðist ekkert!!! það eina sem þetta bað gerði var að gera þetta verra því ég þurfti að klifra þarna uppúr baðinu og beygja mig niður þegar ég var að þurrka mér og eikkað... GEÐVEIKT ÖMURLEGT!!!  en allavega ég og Anna fórum út með Evu í dag og kíktum í spúútnik og þar er kíló af fötum á 3.500 kall!! geggjað kÚl.... ekki það að spúútnik sé mín uppáhaldsbúð:S... en það eru flott föt þarna inná milli.... en allavega... lengra verður þetta ekki í dag bitches 'n' hoes!! shit hvað ég er svöl... en allavega ég ætla að sitja hérna og vorkenna mér útaf bakinu og svo ætla að ég að hætta að vorkenna mér því að ég er svo svöl...

Rúský


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 14:24:57 / agnez

heh..

ég er að pæla í að hafa þessa síðu ennþá.. hmmm...það er alveg hellingur búinn að gera síðan síðast þegar ég bloggaði... hvar á ég að byrja.... byrja bara á því að ég stóð mig geðveikt vel í jólaprófunum......miðað við mig allavega:lol:... svo voru ég og Anna og Gunni bara 3 hérna saman á jólunum...það var fínt.. mjög kósý... ég var samt ekkert í neinum stórkostlegum jólafíling en ok... svo fór ég norður til mömmu og óskars og var þar yfir áramótin og fór á ballið.... voru nú ekki jafn margir og í fyrra en það var samt fínt og ég skemmti mér bara konunglega....svo um hálf 7 drösluðum ég og halldór okkur heim.... hann reyndi að fara í tölvuna og ég reyndi að lesa eikkerja bók en við vorum bara ekki í ástandi til þess og sofnuðum eikkað um 8 ábyggilega held ég...ég vaknaði ekki svo fersk um hádegi þegar mamma kom með töskurnar mínar.....en ég mátti sko alveg bíða til 5 um daginn eftir að Halldór vaknaði:p... en svo eikkern tíma um kvöldið kom steinar og við brunuðum til rvk... svo bara eikkað...svo fór ég í skólann í 3 daga og svo til danmerkur.... það var mjög gaman í danmörku en ferðin misheppnaðist aðeins því að eftir 3 daga fékk ég lungnabólgu og 40 stiga hita! og daginn eftir það fékk Anna líka lungnabólgu og við vorum bara fárveikar það sem eftir var!!... en sem betur fer náðum við að versla helling áður en við urðum veikar... ooooog fengum okkur tattoo!!!! :haha:... það var gaman:p.... ætluðum að vera á svona gistiheimili í Kaupmannahöfn síðustu nóttina okkar... en það var bara ekki séns...svo við fórum bara á Plaza í staðinn....:haha:...pöntuðum roomservice og allt.. það var geggjað... svo er ég bara búin að vera í skólanum og eikkað... en já!! ég gleymdi einu... í nóvember átti hann Gunnar Lárus afmæli... og Anna kom með brilliant hugmynd um að halda surprise partý fyrir hann og við plönuðum það...og hún bauð öllum vinum hans og keypti helling af áfengi og við bjuggum til geggjaða bollu! en hún var eilítið of sterk fyrir minn smekk...! en þetta heppnaðist bara alveg stórkostlega og það var geggjað gaman hjá öllum held ég sko!! allavega hjá mér... en svo forðaði ég mér bara heim til Ragga þegar allir voru orðnir svona....hmm.. já alveg blindhaugafullir!:p... enn ég ætla að reyna að blogga meira núna...fyrst við erum komin með netið hérna aftur....

rúský


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2